Amplified After Midnight 118ml Manic Panic
3.250 kr.
Manic Panic Amplified After Midnight. Sterkur, endingargóður og vegan hárlitur. Fáðu hann á netinu eða í Hókus Pókus á Laugavegi 69.
Availability: In stock
Vörulýsing
Langar þig í hár sem fólk tekur eftir? Manic Panic Amplified er sterkari og endingarbetri útgáfan af sígildu Manic Panic hárlitunum frá New York. Liturinn helst lengur í hárinu og dofnar hægar, svo þú nýtur hans enn lengur.
Helstu kostir:
Hálfvaranlegur (semi permanent) litur sem endist lengur en Classic línan
Vegan og ekki prófaður á dýrum
Án ammoníaks, peroxíðs og PPD
Tilbúinn til notkunar, engin blöndun nauðsynleg
Má blanda við aðra Manic Panic liti til að búa til þinn eigin lit
118 ml krukka
Notkun
- Liturinn nýtur sín best á ljósu eða aflituðu hári. Á dökku hári gefur hann aðeins blæ.
- Þvoðu hárið með sjampói (ekki nota hárnæringu) og láttu það þorna.
- Notaðu hanska og berðu feitt krem meðfram hárlínunni til að verja húðina.
- Berðu litinn jafnt í hárið og láttu hann bíða í minnst 30 mínútur. Því lengur, því sterkari litur.
- Skolaðu úr með köldu vatni þar til vatnið verður nær tært.
Gott ráð: Þvoðu hárið með köldu vatni og litavænu sjampói, þá helst liturinn lengur.
Gerðu prufu á húð 48 klst. fyrir notkun og prófaðu litinn á litlum lokki fyrst. Liturinn getur litað föt, handklæði og yfirborð.
Kíktu á okkur á Laugavegi 69 og skoðaðu alla Manic Panic litina í búðinni!
- Skila- og skiptifrestur er 14 dagar. Vara og umbúðir þurfa vera í upprunalegu ástandi.
- Pantanir eru póstlagðar innan 2 virka daga, yfirleitt næsta virka dag.









