Loading...

Amplified Virgin Snow Toner 118ml Manic Panic

3.250 kr.

Fáðu hreinan, ísbjartan lit í ljósa hárið með Manic Panic Amplified Virgin Snow tóner

Availability: In stock

Vörunúmer: 70584 Vöruflokkar: , Vörumerki: , , , Brand:

Vörulýsing

Langar þig í hár sem fólk tekur eftir? Manic Panic Amplified er endingarbetri útgáfan af sígildu Manic Panic hárlitunum frá New York.

Manic Panic Virgin Snow er tóner frekar en litur. Hann fjarlægir óæskileg litarefni sem verða eftir í hárinu eftir aflitun og jafnar út tóna sem eru á móti honum á litahjólinu. Hann eyðir gulum og appelsínugulum tónum svo útkoman verður hvítt hár. Mælt er með því að láta Manic Panic Virgin Snow bíða í hárinu í nokkrar klukkustundir.

Því lengur sem hann fær að bíða, því betur jafnar hann út andstæða litinn. Hiti frá hárblásara flýtir fyrir virkninni.

Athugið: Endanleg útkoma getur verið misjöfn eftir hárgerð, gljúpleika hársins og náttúrulegum grunnlit.

Helstu kostir:

Hálfvaranlegur (semi permanent) litur sem endist lengur en Classic línan
Vegan og ekki prófaður á dýrum
Án ammoníaks, peroxíðs og PPD
Tilbúinn til notkunar, engin blöndun nauðsynleg
118 ml krukka

Notkun

  1. Liturinn nýtur sín best á ljósu eða aflituðu hári.
  2. Þvoðu hárið með sjampói (ekki nota hárnæringu) og láttu það þorna.
  3. Notaðu hanska og berðu feitt krem meðfram hárlínunni til að verja húðina.
  4. Berðu litinn jafnt í hárið og láttu hann bíða í nokkrar klukkustundir. Því lengur, því sterkari litur.
  5. Skolaðu úr með köldu vatni þar til vatnið verður nær tært.

Gott ráð: Þvoðu hárið með köldu vatni og litavænu sjampói, þá helst liturinn lengur.

Gerðu prufu á húð 48 klst. fyrir notkun og prófaðu litinn á litlum lokki fyrst. Liturinn getur litað föt, handklæði og yfirborð.

Kíktu á okkur á Laugavegi 69 og skoðaðu alla Manic Panic litina í búðinni!

 

Þér gæti einnig líkað við...